Hugurinn er máttugur bandamaður þeirra sem hafa lært að virkja hann til góðra verka. Í þessari bók má finna áhrifaríkar hugmyndir og aðferðir sem geta hjálpað þeim sem vilja ná betri stjórn á eigin hugsunum. Með því að nýta efni bókarinnar til fullnustu má ná auknum árangri á öllum sviðum lífsins, hvort sem er í einkalífi, viðskiptum eða félagslífi. Framsetningin er skýr og einföld en á sama tíma á heimspekin sér djúpar rætur í austrænum og vestrænum fræðum.Lærðu meira um það hvernig hugurinn starfar og hverju þú getur stjórnað.Lærðu að nýta þér streitu til framdráttar en draga á sama tíma úr neikvæðum áhrifum hennar.Lærðu að byggja upp sjálfstraust með því að setja þér markmið og efla jákvætt hugarfar.Lærðu að koma lífinu í betra jafnvægi með því að skilja hinar sjö mannlegu þarfir.Lærðu einfalda hugleiðsluaðferð til að þjálfa upp einbeitingu og auka afköst.Bókin var metsölubók á Íslandi árið 2007, seldist upp árið 2010, en er nú loksins fáanleg á ný.